17. september 2024
Fréttir
Húnabyggð vill vekja athygli á því að námsmenn, 15 - 17 ára, þurfa að sækja um húsnæðisstuðning fyrir hverja skólaönn.
Umsóknir vegna húsnæðisstuðnings skulu hafa borist eigi síðar en 30. september.
Umsókn er rafræn og má nálgast hér.
Húsnæðisstuðningur greiðist mánaðarlega fyrir mánuðinn á undan og eru ágúst og september greiddir út saman.
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast inni á vef Húnabyggðar www.hunabyggd.is