Nú er tækifæri fyrir einstaklinga og fyrirtæki í ferðaþjónustu þar sem opnað hefur verið fyrir umsóknir um leigu á Húnavöllum. Á Húnavöllum er m.a. hótelbygging, matsalur og íþróttasalur, fimm nýupgerðar íbúðir, sundlaug og heitur pottur, tjaldsvæði, sparkvöllur og leiksvæði. Auk þess er staðsetning Húnavalla sérlega góð, skammt frá þjóðvegi 1 en að sama skapi ríkir mikil kyrrð á staðnum. 

Nánari upplýsingar um leigu á Húnavöllum má nálgast á skrifstofu Húnabyggðar, í síma 455-4700 eða á netfangið hunabyggd@hunabyggd.is 

Áskilinn er réttur til að taka hvaða umsókn sem er eða hafna öllum. Eignin er í söluferli og því er um tímabundinn samning að ræða.

Getum við bætt efni þessarar síðu?