Húnabyggð auglýsir eftir uppbyggingarverkefnum í ferðaþjónustu til að setja á forgangslista Húnabyggðar fyrir Áfangastaðaáætlun Norðurlands. Þau verkefni sem eru á forgangslista sveitarfélagsins fá auka stig við mat á umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða en opnað verður fyrir umsóknir í haust.

Skila þarf inn greinagóðri lýsingu á verkefnum, upplýsingum um hagsmunaaðila ásamt samþykki allra landeigenda ef við á. Verkefni sem til stendur að sækja um fyrir í haust koma einungis til greina.

Árið 2018 var fyrst gerð Áfangastaðaáætlun fyrir Norðurland, þar sem gert var stöðumat á ferðaþjónustu á Norðurlandi og forgangsröðun verkefna til næstu þriggja ára. Síðan þá hafa forgangsverkefni Áfangastaðaáætlunar verið uppfærð árlega. Hverju sveitarfélagi á Norðurlandi gefst kostur á að senda inn fimm verkefni á forgangslistann.

Frestur til að skila inn uppbyggingarverkefnum til Húnabyggðar er til og með 9. ágúst nk.

Tekið er á móti verkefnahugmyndum á netfangið hunabyggd@hunabyggd.is 

Nánari upplýsingar um Áfangastaðaáætlunina og forgangsverkefni er hægt að finna hér.

Getum við bætt efni þessarar síðu?