20. ágúst 2020
Fréttir
- Gefnar hafa verið út leiðbeiningar vegna gangna og rétta vegna COVID-19 hættustigs almannavarna.
- Leiðbeiningarnar voru unnar í samstarfi almannavarna, sóttvarnalæknis, Landssamtaka sauðfjárbænda, Bændasamtaka Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
- Um er að ræða almennar leiðbeiningar um framkvæmd á göngum og réttum. Það er síðan á ábyrgð sveitastjórnar, sem fer með stjórn fjallskilamála, að tryggja að reglum um sóttvarnir sé fylgt eftir og gefa út frekari leiðbeiningar ef þurfa þykir.
- Áhersla er lögð á að hver og einn beri ábyrgð á eigin athöfnum og að: „Við erum öll almannavarnir“
Hér má finna leiðbeiningar vegna gangna og rétta
Hér má finna fundargerð landbúnaðarnefndar frá 20. ágúst 2020