04. mars 2019
Tilkynningar
Girðingarverktakar
- Húnavatnshreppur auglýsir eftir girðingaverktökum.
- Um er að ræða girðingaviðhald á Auðkúluheiði, Grímstunguheiði, Haukagilsheiði og Víðidalsfjalli.
- Óskað er eftir tilboði í hverja klukkustund fyrir mann, tæki (gröfu ofl.) og gjald fyrir hvern ekinn kílometer.
- Reikna má með að þessi vinna sé um 1.500 klst. á ári.
- Ennfremur má reikna með að viðkomandi verktaki vinni önnur girðingaverk fyrir sveitarfélagið.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl nk.
- Tilboðum skal skilað inn til Húnavatnshrepps á netfangið einar@hunavatnshreppur.is
- Í tilboðinu skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga um ofangreint eftir því sem við á.
- Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að velja fleiri en einn verktaka.
Nánari upplýsingar:
- Einar Kristján Jónsson, sveitarstjóri í síma 452 4661.