15. september 2020
Fréttir
Félagsmiðstöðin Skjólið auglýsir eftir frístundaleiðbeinendum.
Umsækjendur þurfa að hafa náð að lágmarki 20 ára aldri og vera reglusamir og góðar fyrirmyndir fyrir börn og unglinga.
Eftirtalin atriði eru á meðal þeirra verkefna sem frístundaleiðbeinendur í Skjólinu þurfa að sinna:
- Skipulagning og undirbúningur á fjölbreyttu tómstundastarfi með börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára.
- Skipulagning á dagskrá, viðburðum og hópastarfi í samstarfi við annað starfsfólk og unglinga.
- Hvetja börn og unglinga til þátttöku í fyrirbyggjandi tómstundastarfi og fræðslu.
- Sækja viðburði, fundi og námskeið á vegum Samfés, Samtökum félagsmiðstöðva á Íslandi.
- Fararstjórn í 2-3 ferðalögum á ári á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
- Almenn umhirða og reglulegur frágangur á húsnæði félagsmiðstöðvarinnar.
Umsóknarfrestur er til 21. september n.k. og skal umsóknum skilað til forstöðumanns á netfangið pallrunar@blonduskoli.is þar sem einnig er hægt að fá frekari upplýsingar um starfið.