05. apríl 2023
Fréttir
Almennur fundur í Fjallskiladeild Bólstaðarhlíðarhrepps verður haldinn í Húnaveri þriðjudagskvöldið 11. apríl 2023 og hefst kl. 20:30.
Fundurinn er ætlaður til skoðanaskipta um fyrirkomulag fjallskilamála í fjallskiladeildinni.
Kynnt verður uppgjör ársins 2022.
Sama kvöld verður fundur hjá Sjálfseignarstofnun Eyvindarstaðaheiðar.
Stjórn Fjallskiladeildar Bólstaðarhlíðarhrepps