Mynd: Rúv.is
Mynd: Rúv.is

Forsetakosningar fara fram þann 1. júní 2024. Í Húnabyggð verður kosið í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi – Norðursal, gengið inn frá Melabraut.

Kjörfundur hefst kl. 09:00 og lýkur eigi síðar en klukkan 22:00.

Kjósendum ber að framvísa persónuskilríki á kjörstað.

Kjörskrá Húnabyggðar liggur frammi á skrifstofu Húnabyggðar, frá og með 11. maí 2024 og til kjördags. Kjörskráin miðast við skráð heimilisfang hjá þjóðskrá 24. apríl 2024. Opnunartími skrifstofu er frá kl. 09:00-15:00 alla virka daga.

Bent er á upplýsingavef http://www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/forsetakosningar/

Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár.

Yfirkjörstjórn Húnabyggðar

Getum við bætt efni þessarar síðu?