Félagsmiðstöðin Skjólið í Húnabyggð auglýsir eftir frístundaleiðbeinendum.
Um er að ræða tímavinnu þar sem unnið er 1-3 kvöld í viku, u.þ.b. 20 tímar á mánuði.
Umsækjandi þarf að:
- Hafa náð 20 ára aldri.
- Hafa áhuga og/eða reynslu á starfi með börnum og unglingum.
- Sýna jákvæðni, sveigjanleika og lipurð í samskiptum.
- Geta unnið með öðrum.
- Hafa hreint sakavottorð skv. 10.gr æskulýðslaga (lög nr. 70/2077).
- Hafa frumkvæði og vera sveigjanlegur í starfi.
Helstu verkefni:
- Skipulagning og undirbúningur á fjölbreyttu tómstundastarfi með börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára.
- Vinna með börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára.
- Vera leiðandi fyrirmynd í uppbyggilegu starfi félagsmiðstöðvarinnar og leitast við að efla sjálfsmynd unglinga og virkja þá til uppbyggilegrar þátttöku.
- Almenn umhirða og reglulegur frágangur á húsnæði félagsmiðstöðvarinnar.
- Ferðir og viðburðir á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
Virk þátttaka ungmenna í félagsstarf er til þess fallin að auka félagslega hæfni, þroska og jákvæða sjálfsmynd þeirra. Því er mikilvægt að starfsfólk geti skapað andrúmsloft þar sem allir séu boðnir velkomnir í félagsmiðstöðvarstarfið á eigin forsendum.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til þess að sækja um.
Umsóknir berist á netfangið kristin@hunabyggd.is. Umsóknarfrestur er til 28.júní 2024
Frekari upplýsingar veitir Kristín Ingibjörg Lárusdóttir, menningar-, íþrótta-, og tómstundafulltrúi Húnabyggðar í síma 455-470o eða á netfangið kristin@hunabyggd.is