SSNV, samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra auglýsa laust til umsóknar starf verkefnastjóra. Leitað er að drífandi, framsýnum og sjálfstæðum verkefnastjóra sem býr yfir einstökum hæfileikum í mannlegum samskiptum.
Við óskum eftir samstarfsfélaga sem hefur ástríðu fyrir uppbyggingu samfélagsins sem við búum í og vill taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem heyra undir málaflokka landshlutasamtakanna. Við lofum góðu starfsumhverfi og metnaðarfullum verkefnum.
SSNV eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Hjá SSNV starfar metnaðarfullt teymi sem vinnur af ástríðu fyrir samfélagið, fyrirtæki og fólk á svæðinu. Starfsstöðvar SSNV eru á Hvammstanga, Blönduósi, Skagaströnd og Sauðárkróki. Við leitum að einstakling sem vinnur með okkur að eflingu svæðisins og tekur þátt í spennandi vegferð og uppbyggingu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. SSNV leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið. Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er 26. mars 2024
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn verkefnastjórnun og umsýsla verkefna.
- Umsjón með málaflokkum sem eru í áherslu hverju sinni.
- Samskipti við styrkþega, upplýsingamiðlun og önnur umsýsla.
- Almenn atvinnuráðgjöf og samskipti við hagaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi.
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
- Haldbær þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga.
- Góð samskiptafærni og tölvukunnátta.
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og jákvæðni.
- Framsýni og metnaður.
- Góð rit- og talfærni á íslensku og hæfni í framsetningu upplýsinga á aðgengilegan hátt.