29. október 2021
Fréttir
- Húnavatnshreppur, sendi inn sjö (7) umsóknir til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða, samtals var sótt um styrki að upphæð 138.004.000 kr..
- Sótt var um í eftirfarandi verkefni:
- Gullsteinn: Sótt var um að byggja upp ný bifreiðastæði, uppsetning skilta og nýjum krossi, göngustígagerð ofl. (sjá hér)
- Hvammsfoss/Mígandi: Sótt var um lagningu göngustígs, bifreiðastæði, lýsingu á gönguleið upplýsingu á fossi ofl. (sjá hér)
- Ólafslundur: Sótt var um styrk til kaupa á sjálfvirku salerni (sjá hér)
- Þrístapar: Sótt var um styrk til kaupa á sjálfvirku salerni (sjá hér)
- Minnisvarði um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur: Sótt var um styrk til að ganga frá umhverfi við minnisvarða um Bríeti, sem var settur upp árið 2007 við Haukagil í Vatnsdal. (sjá hér)
- Vatnsdæla saga: Sótt var um styrk á endurnýjun á skiltum sem staðsett eru í Vatnsdal. Setja QR kóða á þau svo að ferða menn geti fengið sögusvið viðkomandi áningastaðar beint í síma sinn og lesið eða hlustað á lýsingu. (sjá hér)
- Þrándarhlíðarfjall: Sótt var um vegna undirbúnings- og hönnunarvinnu á útsýnispalli, aðkomu ofl. (sjá hér)
- Sótt var um í eftirfarandi verkefni: