Enn snjallari mælir frá Rarik

 

Í næstu viku munum við hjá Rarik hefja endurnýjun snjallmæla fyrir hita og rafmagn á Blönduósi.

Við munum hafa samband við viðskiptavini fljótlega og senda upplýsingar um mælaskiptin bæði með SMS skilaboðum og nánari upplýsingum í tölvupósti.

Starfsmenn Rarik sem vinna í mælaskiptunum verða í sambandi til að finna tíma sem hentar.

 

Við hlökkum til að færa ykkur enn snjallari framtíð.

Starfsfólk Rarik

 

_________________________________________________________________________________________

 

Nánar um mælaskiptin:

Af hverju erum við að skipta út mælum?

  • Við erum að skipta í nýja og snjallari orkusölumæla sem gefa enn betri gögn um raunnotkun viðskiptavina.

Hvernig fara mælaskiptin fram ?

  • Sérbýli: Viðskiptavinir fá upplýsingar sendar bæði með SMS skilaboðum og í tölvupósti. Starfsfólk Rarik sem vinna í mælaskiptum verða í sambandi til að finna tíma sem hentar.
  • Fjölbýli: Í fjölbýlishúsum eru mælar yfirleitt í sameign og þá er nóg að einhver sé heima til að hleypa okkur inn. Við sendum tengilið húsfélagsins skilaboð og látum vita að við séum á leiðinni.

    Mikilvægt er að viðskiptavinir tryggi að tengiliðaupplýsingar séu réttar á Mínum síðum Rarik. https://www.rarik.is/

Heimsóknin

  • Þegar kemur að mælaskiptunum mun fólk á okkar vegum heimsækja þig og skipta um orkusölumælana.
  • Sjálf mælaskiptin taka um 30 mínútur, en taka þarf rafmagn og heitt vatn af á meðan.
  • Við biðjum þig að tryggja gott aðgengi að mælum svo skiptin gangi vel fyrir sig.

 

Nánari upplýsingar um snjallmæla má finna á vef Rarik, https://www.rarik.is/spurt-og-svarad/snjallmaelar

Getum við bætt efni þessarar síðu?