Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, með síðari breytingum og að fengnum tillögum frá sveitarstjórn Blönduósbæjar, sem samþykktar voru 13. nóvember 2018, hefur lögreglustjóri ákveðið að umferðarhraði verði færður niður í 35 km/klst á öllum götum bæjarins, nema á Húnabraut frá Árbraut út að Blönduóshöfn, Ennisbraut, Hnjúkabyggð að Koppagötu, Þingbraut frá Hnjúkabyggð að Aðalgötu, Þjóðvegi 1 og Svínvetningabraut þar sem hann verður enn 50 km/klst. Þá verði almenn regla um hægri rétt afnuminn á Mýrarbraut og biðskylda sett í staðinn. Stöðvunarskylda verður sett á Hnjúkabyggð gagnvart Aðalgötu. Gangbrautum verður bætt við á Hólabraut og Vallarbraut.
Framangreindar breytingar verða gefnar til kynna með viðeigandi umferðarmerkjum, sbr. reglugerð nr. 289/1995, með síðari breytingum, um umferðarmerki og notkun þeirra.
Breytingar þessar taka gildi tekur gildi við birtingu auglýsingar þessarar.
Með auglýsingu þessari eru numin úr gildi þau ákvæði eldri auglýsinga, sem kunna að hafa verið sett, um umferð á Blönduósi sem brjóta í bága við auglýsingu þessa.
Blönduósbær vinnur að uppsettningu nýrra skilta þar sem við á.