Auglýsing um skipulagsmál í Blönduósbæ
Aðalskipulag.
Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst til kynningar skipulags- og matslýsing fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:
Breyting á aðalskipulagi Blönduósbæjar 2010-2030
Um er að ræða breytingu vegna legu Þverárfjallsvegar, nýrra efnistökusvæða og Sorpförgunarsvæðis.
Einnig er fyrirhuguð breyting á deiliskipulaginu Urðun og efnistaka í landi Sölvabakka.
Samhliða verður gerð breyting á deiliskipulagi Urðun og efnistaka í landi Sölvabakka þar sem heildarmagn urðunnar og árlegt magn urðunar er aukið.
Aðal- og deiliskipulagsbreytingar verða til sýnis á skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi frá 20.05 2020 til 03.06 2020. Skipulags- og matslýsingin er aðgengileg hér.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við framlögð gögn til 03.06 2020. Skila skal athugasemdum skriflega á skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi eða á netfangið byggingafulltrui@blonduos.is.
Skipulagsfulltrúi Blönduósbæjar,
Þorgils Magnússon