Auglýsing á deiliskipulagi við Þrístapa í landi Sveinsstaða í Húnavatnshreppi.

Í samræmi við samþykkt  sveitarstjórnar Húnavatnshrepps, 6. apríl 2018, er hér með auglýst tillaga að deiliskipulagi við Þrístapa í landi Sveinsstaða í Húnavatnshrepp skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan samanstendur af skipulagsuppdrætti og greinargerð.  Allar meginforsendur deiliskipulagsins eru í samræmi við Aðalskipulag Húnavatnshrepps 2010–2022.

Tillagan liggur frammi til kynningar frá 6. apríl til 21. maí nk. á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hnjúkabyggð 33 á Blönduósi. Að sama skapi á skrifstofu Húnavatshrepps að Húnavöllum. Einnig er tillagan aðgengileg á heimasíðu Húnavatnshrepps, http://www.hunavatnshreppur.is.  Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 21. maí nk. til skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Hér má finna tillöguna:

    Þorgils Magnússon, 

skipulagsfulltrúi í Húnavatnshreppi.

Getum við bætt efni þessarar síðu?