07. janúar 2022
Tilkynningar
- Hafin er utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Húnavatnshrepps og Blönduósbæjar.
- Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir:
- Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 til 15:00
- Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 til 15:00
- Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir:
- Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum við kosninguna.
Það skal tekið sérstaklega fram að hægt er að kjósa utan kjörfundar hjá öllum sýslumannsembættum landsins og sendiráðum.