20. apríl 2021
Fréttir
- Þann 12. apríl sl. hófst utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Blönduósbæjar, Skagabyggðar, Sveitarfélagsins Skagastrandar og Húnavatnshrepps.
- Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir:
- Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 til 15:00
- Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 til 15:00
- Á öðrum stöðum fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram sem hér segir í samráði við hreppsstjóra:
- Sveitarfélaginu Skagaströnd, að Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd, hjá Magnúsi B. Jónssyni, skipuðum hreppsstjóra, s-899-4719:
- Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins sem hér segir:
- Miðvikudaginn 2. júní næstkomandi verður opið til kl. 19:00 í aðalskrifstofunni á Blönduósi.
- Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal hafa borist sýslumanni á sérstöku eyðublaði eigi síðar en þriðjudaginn 1. júní 2021 kl. 16:00.
- Kosið verður á HSN Blönduósi og Dvalarheimilinu Sæborg á Skagströnd í vikunni fyrir kjördag, nánar auglýst síðar.
- Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum við kosninguna.
Það skal tekið sérstaklega fram að hægt er að kjósa utan kjörfundar hjá öllum sýslumannsembættum landsins.