16. ágúst 2024
Fréttir
Nú er allt að verða klárt fyrir Vatnsdæluhátíðina sem hefst í dag og nær svo hápunkti á morgun.
Á morgun verður fjölbreytt og skemmtilegri dagskrá sem byrjar með Vatnsdalshólahlaupum kl. 11 og endar svo með tónleikum með Hund í óskilum annað kvöld í Eyvindarstofu kl 20:30
Búið er að setja upp veislutjöld í Þórdísarlundi eins og má sjá á myndunum hér að neðan og því engin ástæða til að láta rigninguna stoppa sig.
Við hvetjum alla til að mæta í Þórdísarlund á morgun, hvort sem fólk ætlar að hlaupa eða kemur bara til að hvetja og njóta góðrar stemningu.