25. janúar 2018
Fréttir
Álagningu fasteignagjalda Blönduósbæjar árið 2018 er lokið og hafa greiðslur verið birtar í heimabönkum viðkomandi gjaldenda. Álagningaseðlarnir eru rafrænir og birtast inn á www.island.is á „mínum síðum“. Seðlarnir eru svo aðgengilegir í pósthólfi viðkomandi aðila. Hægt er að óska eftir að fá álagningarseðla senda í pósti. Allar frekari upplýsingar fást á skrifstofu Blönduósbæjar eða í síma 455 4700.