17. maí 2024
Fréttir
Húnabyggð óskar eftir tilboðum í uppsetningu og afhendingu á ca. 650-700 m2 leikskóla úr húseiningum, timbur- eða gáma-einingum til leigu á lóð við hlið núverandi leikskóla að Hólabraut 17 með kaupsréttarákvæðum. Í byggingunni verða fjórar leikskóladeildir. Húnabyggð leggur til lóð, jarðvinnu og þjappaða fyllingu undir undirstöður og heimæðar veitukerfa lagðar að lóðarmörkum en leigusali skal skila byggingunni fullfrágenginni og tilbúinni til notkunar við afhendingu.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef verkefnisins:
https://utbodsgatt.is/hunabyggd/holabraut17-blonduosi
Tilboðum skal skila rafrænt undir sömu vefslóð fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. júní 2024