Laust er til umsóknar starf konu við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi. Um er að ræða sumarstarf sem unnið er í vaktavinnu samkvæmt vaktaplani frá 1. júní til 20. ágúst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Sumaropnun Íþróttamiðstöðvarinnar er mánudaga til föstudaga frá kl. 08:00 til 21:00 og um helgar frá kl. 10:00 til 20:00.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Öryggisgæsla
- Baðvarsla í klefum
- Afgreiðsla og þjónusta við gesti
- Þrif
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kröfur eru gerðar til umsækjenda að þeir hafi góða sundkunnáttu og standist hæfnispróf sundstaða samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum.
- Gerð er krafa um ríka þjónustulund ásamt því að eiga auðvelt með að umgangast börn sem og fullorðna.
- Reglusemi
- Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
- Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg.
Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda.
Nánari upplýsingar gefur Katrín Benediktsdóttir, verkefnastjóri í síma 455-4700 og í tölvupósti á netfangið katrin@hunabyggd.is.
Umsóknum skal skilað á netfangið katrin@hunabyggd.is